Ökukennaranám
23.1. 2008
Um námið
Ökukennaranám fer fram í samræmi við ákvæði 3. gr. reglugerðar um löggildingu ökukennara og starfsleyfi ökuskóla, nr. 327/1999 og samstarfssamning Kennaraháskóla Íslands og Umferðarstofu um ökukennaranám frá 18. febrúar 2005. Samninginn má lesa með því að opna tengil neðar á þessari síðu.
Ökukennaranám er skilgreint sem 30 eininga nám á háskólastigi og gerir því kröfur um tiltekinn undirbúning af hálfu væntanlegra nemenda.
Inntökuskilyrði eru þessi:
- Stúdentspróf eða önnur sambærileg menntun og/eða að umsækjendur búi yfir þroska og reynslu til að hefja háskólanám
- Að hafa ekið bifreið (eftir atvikum bifhjóli) að staðaldri síðustu þrjú árin
- Líkamlegt og andlegt heilbrigði fyrir ökumenn í hópi 2, sbr. reglugerð nr. 501/1997
- Að hafa ekki hlotið dóm skv. ákvæðum 2. mgr. 68. gr. almennra hegningarlaga
Við inntöku í námið er auk þessa horft til starfsreynslu umsækjenda, einkum á sviði
uppeldis- og kennslumála og ökuferils en umsækjendur mega ekki hafa fengið refsipunkta vegna brota á umferðarlögum undanfarin þrjú ár. Lögð er áhersla á að konur jafnt og karlar sæki um námið.
Umsóknir skulu ritaðar á þar til gerð eyðublöð sem nálgast má með því að opna tengil neðar á þessari síðu. Þar er ennfremur að finna ýmsar upplýsingar um námið, s.s. námskrá og kennsluskrá ásamt nánari upplýsingum um hvenær kennsla fer fram.
Nauðsynlegt er að afrit prófskírteina fylgi umsókn.
Námskostnaður er kr. 990.000 (sjá nánar í kennsluskrá).
Allar frekari upplýsingar veitir verkefnastjóri ökukennaranáms, Knútur Hafsteinsson, í síma 525- 5510 milli kl. 9 og 12 virka daga. Einnig má senda tölvupóst á netfangið knuthaf@hi.is
Umsóknarfrestur var til 15. febrúar 2008.
_____________________________
9. janúar 2008
Ákveðið er að nýr námshópur geti hafið nám til ökukennararéttinda í júnímánuði 2008, fáist til þess næg þátttaka. Námið hæfist þá fyrstu daga mánaðarins með undirbúningsnámi fyrir þá umsækjendur sem ekki hafa lokið prófi á háskólastigi sem veitir kennsluréttindi. Að því loknu hæfist svo sjálft ökukennaranámið með tveggja vikna kennslulotu sem yrði þá lokið fyrir mánaðamótin júní/júlí. Um eða eftir miðjan ágúst kæmi svo sennilega önnur lota sem stæði yfir í viku til 10 daga. Eftir þetta upphaf kæmu síðan ca. fjögurra daga kennslulotur á eins til tveggja mánaða fresti nema í júní 2009 en þá yrði væntanlega aftur tveggja vikna lota. Námslok væru þá í lok árs 2009.
Nánari tímasetningar kennslulota verða birtar á þessari síðu á næstu vikum.
Þeir sem áhuga hafa á að sækja um inngöngu í ökukennaranám geta sótt sér umsóknareyðublöð á tengli neðar á þessari síðu, fyllt þau út og sent, ásamt nauðsynlegum fylgigögnum, til Arnaldar Árnasonar, verkefnastjóra ökukennaranáms, sem einnig veitir allar nánari upplýsingar um námið. Frestur til að senda inn umsóknir er til 15. febrúar 2008.
Þeir sem sendu inn umsóknir sl. vor eru vinsamlegast beðnir um að staðfesta þær svo fljótt sem verða má, annaðhvort í síma 525-5510 (virka daga 9-12) eða með tölvupósti á netfangið knuthaf@hi.is
- Námskrá fyrir ökukennara til almennra réttinda
- Samstarfssamningur Umferðarstofu og Kennaraháskóla Íslands
- Kennsluskrá 2008-2009
- Tímaskipting
- Umsóknareyðublað
